Stuðningur við atvinnulíf

Eitt af markmiðum Grindavíkurnefndar er að stuðla að öflugu atvinnulífi í Grindavík.

Mörg fyrirtæki í Grindavík hafa aðlagað rekstur sinn að breyttum aðstæðum en önnur búa enn við margvíslegar áskoranir og erfið rekstrarskilyrði. Ríkið hefur stutt við fyrirtæki í Grindavík með ýmsum hætti. Tekjufall hefur verið bætt að hluta með rekstrarstyrkjum og styrkur til greiðslu launa var veittur á árunum 2023 og 2024.

Núverandi aðgerðir

Sóknarsjóður

Ný stuðningsúrræði munu miða að því að styðja fyrirtæki í vanda til frekari aðlögunar að breyttum aðstæðum. Úrræðin fela bæði í sér ráðgjöf og fjárhagsstuðning til þeirra rekstraraðila sem vilja koma starfsemi sinni í rekstrarhæft form til frambúðar, hvort sem er í Grindavík eða á öðrum stað, og þeirra sem vilja hætta rekstri en þurfa aðstoð við sölu eigna og slit á félagi.
Nýtt fyrirkomulag á stuðningi við fyrirtæki byggist á að velja þann stuðning sem hentar rekstri og efnahag einstakra fyrirtækja en ekki verður farið í uppkaup eigna eða greiðslu skulda fyrirtækja. Val á úrræðum mun þess í stað byggjast á eigin stefnumörkun fyrirtækja. Í boði verður ráðgjöf til fyrirtækja til að útfæra lausnir, endurskipuleggja rekstur og eftir atvikum sækja um fjárhagslegan stuðning til uppbyggingar, umbreytingar og aðlögunar að breyttum aðstæðum. Þá verður  boðið upp á fjármálaráðgjöf og almenna atvinnuráðgjöf.

Sóknarsjóður verður settur á laggirnar í umsýslu Byggðastofnunar. Hjá sjóðnum munu fyrirtæki geta sótt um styrk í formi mótframlags vegna tækjakaupa, flutnings á búnaði, uppsetningu á aðstöðu eða framleiðslutækjum, eða tímabundinn rekstrarstuðning sem áfanga í uppbyggingu að sjálfbærum rekstri.

Hér að neðan má finna reglur um úthlutun Byggðastofnunar á framlögum úr Sóknarsjóði.


Sóknaráætlun


Ný stuðningsúrræði munu miða að því að styðja fyrirtæki í vanda til frekari aðlögunar að breyttum aðstæðum. Úrræðin fela bæði í sér ráðgjöf og fjárhagsstuðning til þeirra rekstraraðila sem vilja koma starfsemi sinni í rekstrarhæft form til frambúðar, hvort sem er í Grindavík eða á öðrum stað, og þeirra sem vilja hætta rekstri en þurfa aðstoð við sölu eigna og slit á félagi.
Nýtt fyrirkomulag á stuðningi við fyrirtæki byggist á að velja þann stuðning sem hentar rekstri og efnahag einstakra fyrirtækja en ekki verður farið í uppkaup eigna eða greiðslu skulda fyrirtækja. Val á úrræðum mun þess í stað byggjast á eigin stefnumörkun fyrirtækja. Í boði verður ráðgjöf til fyrirtækja til að útfæra lausnir, endurskipuleggja rekstur og eftir atvikum sækja um fjárhagslegan stuðning til uppbyggingar, umbreytingar og aðlögunar að breyttum aðstæðum. Þá verður  boðið upp á fjármálaráðgjöf og almenna atvinnuráðgjöf.

Undir merkjum Sóknaráætlunar Suðurnesja hefur fé verið ráðstafað til verkefna sem snúa m.a. að markaðssetningu, vöruþróun og nýsköpun. Stuðningurinn er einkum ætlaður einyrkjum og smærri fyrirtækjum sem voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023, eru í rekstri og hafa a.m.k. einn starfsmann á launaskrá og veltu undir 500 milljónum króna.

Sjá nánar hér:

https://sss.is/uthlutun-uppbyggingarsjods-til-fyrirtaekja-i-grindavik/


Fyrri aðgerðir

Ríkið hefur stutt við fyrirtæki í Grindavík með ýmsum hætti. Tekjufall hefur verið bætt að hluta með rekstrarstyrkjum og styrkur til greiðslu launa var veittur á árunum 2023 og 2024.

Skjöl