Þjónustuteymi

Þjónustuteymi Grindvíkinga

Frá því í júní 2024 hefur þjónustuteymi Grindvíkinga stutt við Grindvíkinga með ýmsum hætti, en teymið var sett á laggirnar í samræmi við lög um framkvæmdanefnd.

Helstu verkefni teymisins hafa lotið að sálfélagslegum stuðningi og hefur m.a. verið hægt að sækja um sálrænan stuðning, fá félagslega ráðgjöf og frá apríl til nóvember 2025 var umsýsla vegna viðbótarhúsnæðisstuðnings í höndum þjónustuteymisins. Hlutverk teymisins tók nokkrum breytingum um áramót 2025-2026 og er starfsemi þess í dag aðallega fólgin í upplýsingagjöf.

Hafa má samband við þjónustuteymi með tölvupósti radgjof@grn.is eða með því að hringja í síma Grindavíkurnefndar, 5450250.