Dec 29, 2025

Áhættumat vegna jarðhræringa á Reykjanesi 28.12.2025

Hér að neðan er nýtt áhættumat vegna jarðhræringa á Reykjanesi sem hefur nú tekið gildi.

Sérstök athygli er vakin á þeim þætti sem snýr að íbúum sem nýlega eru fluttir í bæinn, þekkja lítt til aðstæðna og hafa takmarkaðan skilning á hættu.

Forsendur
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 3. gr. laga nr. 40/2024 um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ fer nefndin með stjórn, skipulag og framkvæmd gerðar áhættumats í þéttbýli í Grindavíkurbæ í samvinnu við ríkislögreglustjóra. Áhættumatið er unnið af ÖRUGG verkfræðistofu ehf., fyrir framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Framkvæmdanefndin hefur fjallað um áhættumatið og samþykkt útgáfu þess.

Samantekt áhættumats

Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir auknum líkum á kvikugangi eða jafnvel nýju eldgosi þar sem kvikumagn heldur áfram að safnast fyrir undir Svartsengi og hefur náð því magni kviku sem fór úr kvikuhólfinu þann 16. júlí. Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum skilgreinir almannavarnarstig enn sem óvissustig, en margir þættir hafa áhrif á áhættumat svæðisins. Litið er til hættumats Veðurstofu Íslands frá 9. desember 2025, auk umfangs atvinnustarfsemi, samsetningu íbúa og fjölda á svæðinu ásamt umferðar ferðamanna á hættusvæðum, þeirra varna sem eru til staðar auk viðbragðsgetu. Frá 1. nóvember hefur verið sólarhrings vakt hjá slökkviliði Grindavíkur. Slökkviliðið sinnir eftirliti í Grindavík, en helstu atriði sem horft er til eru viðvera í bænum, ástand flóttaleiða, umferð, ástand girðinga og mannaferðir um afgirt svæði.

Mikil hætta er nú til staðar á mögulegu svæði gosopnunar, í hættumati Veðurstofu, og töluverð hætta teygir sig inn fyrir varnargarða Grindavíkur. Ferðafólk hefur gengið að nýlegu hrauni eftir ýmsum leiðum, sem geta verið varasamar. Merkingar, leiðbeiningar og aðrar stýringar minnka áhættuna að hluta, en óvissan um mögulega gosopnun eykur áhættuna verulega. Ekki er hægt að tryggja öryggi fólks á sprengjusvæði. Með góðu aðgengi að upplýsingum, afmörkuðum og merktum gönguleiðum, og stýringum við hraunið er áhættan mun lægri. Ferðaþjónustufyrirtæki bera ábyrgð á að upplýsa og skýra út þá áhættu sem er til staðar fyrir fólki á þeirra vegum.

Síðasta ítarúttekt á sprungum var gerð 18. júlí sl. sem benti ekki til að nein markverð hreyfing hafi orðið í bænum eftir síðustu jarðskjálfta. Mikilvægt er að góðar upplýsingar og merkingar séu til staðar vegna ferðafólks, til að tryggja að fólk fari t.d. ekki inn á sprengjusvæði eða svæði þar sem vitað er af sprungum.

Áhættan á mögulegu svæði gosopnunar og á sprengjusvæði er metin mjög há fyrir viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka, en óásættanleg fyrir ytri aðila og ferðamenn. Tryggja þarf virkar stýringar til að fólk haldi sig utan svæðis sem telst til mikillar hættu í hættumati Veðurstofu vegna gosopnunar og að flóttaleiðir séu tryggar.

Breyting hefur orðið á áhættustigum í Grindavík frá síðasta útgefna áhættumati. Viðbragðsgeta á mismunandi tímum sólarhringsins og vöktunargeta miðað við veðuraðstæður eru dæmi um þætti sem hafa áhrif á áhættustigið. Í Grindavík er miðlungs áhætta fyrir viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka, fyrirtæki og almenna íbúa bæði að degi til og að nóttu til. Þá er miðlungs áhætta fyrir ytri aðila og ferðamenn á daginn en há áhætta að nóttu til. Áhættan fyrir nýja íbúa og fólk í viðkvæmri stöðu er há áhætta, að degi til og að nóttu til. Áhættustig er lægra fyrir almenna íbúa, fyrirtæki og viðbragðsaðila í Grindavík heldur en fyrir nýja íbúa og fólk í viðkvæmri stöðu, þar sem fyrrnefndir hópar hafa gjarnan frekari þekkingu þeirra á aðstæðum og reynslu af rýmingu, en einnig betra aðgengi að upplýsingum og björgum.

Í Svartsengi er áhættan óbreytt, miðlungs áhætta fyrir alla hópa. Lykil ferðaþjónustuaðilar í Svartsengi gegna veigamiklu hlutverki í að tryggja öryggi stórs hóps á svæðinu, sem hefur áhrif á áhættuna á viðkomandi stöðum til lækkunnar áhættu.

Áhættumatið gildir þar til nýtt áhættumat er gefið út.

Áhættumat 28.12.2025