Skýrsla um stuðningsaðgerðir fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í Grindavík

Starfshópur sem annaðist framkvæmd stuðningsaðgerða ríkisstjórnarinnar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í Grindavík árið 2025 hefur skilað skýrslu um verkefnið.
Í skýrslunni kemur m.a. fram að þær aðgerðir sem ríkisstjórnin tók ákvörðun um að fara í, þ.e. sóknarsjóður, rekstrarráðgjöf og viðauki við sóknaráætlun Suðurnesja, hafa gengið með ágætum og að þrátt fyrir áskoranir sé skýr vilji til staðar á meðal fyrirtækja til að halda starfsemi áfram og þróa rekstur sinn til framtíðar.