Skýrsla um starfsemi þjónustuteymis Grindvíkinga
Þjónustuteymi Grindvíkinga var starfrækt samkvæmt lögum um Grindavíkurnefnd frá 1.júní 2024 og sinnti þjónustu við Grindvíkinga til og með desember 2025. Í meðfylgjandi samantekt um starfsemi þjónustuteymisins er farið yfir helstu verkefni þess, en teymið sá meðal annars um úrvinnslu umsókna um sálrænan stuðning og viðbótarhúsnæðisstuðning, auk framkvæmdar laga um leik-og grunnskóla, laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og almenna ráðgjöf og fræðslu.
Skýrslan er byggð á eftirfarandi gögnum:
Gögnum úr daglegri starfsemi þjónustuteymisins, þar á meðal skráningu á þjónustubeiðnum, tilvísunum í sérhæfða meðferð, fjölda símtala, heimsókna í skóla og samskipta við móttökusveitarfélög.
Niðurstöðum þeirra gagna sem unnar voru samhliða starfseminni: Íslenska æskulýðsrannsóknin 2023 og 2025 (633 grindvísk börn svöruðu), könnun Grindavíkurnefndar meðal 1.470 íbúa Grindavíkur, rýnihópaverkefni á rafrænu umræðuborði með fimm þátttökuhópum.
Faglegu mati þeirra sérfræðinga sem komu að starfi teymisins og samstarfsstofnana þess.