Rammaáætlun um endurreisn Grindavíkur

Endurreisn Grindavíkur: Öryggi, farsæld og framtíðarsókn

Grindavíkurnefnd hefur lagt fram rammaáætlun um endurreisn Grindavíkur þar sem megináhersla er lögð á öryggi, farsæld íbúa og uppbyggingu samfélagsins til framtíðar. Áætlunin tekur mið af því að náttúruvá er enn til staðar og óvissa ríkir um þróun jarðhræringa. Rammaáætlunin byggir á mati á stöðu mála undir viðvarandi náttúruhamförum og leggur grunn að samstilltu átaki ríkis, sveitarfélaga og samfélagsins alls. Nefndin hefur í vinnu sinni átt samráð og samstarf við fjölmarga hagaðila, s.s. Grindavíkurbæ, ráðuneyti og stofnanir, atvinnulíf, félagasamtök, önnur sveitarfélög, vísindasamfélagið o.fl.

Leiðarljós endurreisnar

Leiðarljós rammaáætlunar eru sett fram til að styðja við ákvarðanir á meðan unnið er að endurreisn Grindavíkur. Þau draga fram mikilvæga þætti á borð við öryggi, farsæld og seiglu Grindvíkinga.

  • Viðvarandi óvissa. Öll áform þurfa að vera sveigjanleg og taka mið af breytilegum aðstæðum.

  • Öryggi er grunnforsenda. Það nær bæði til áþreifanlegra þátta, svo sem innviða og náttúruvár, og óáþreifanlegra þátta eins og tilfinningar íbúa og traust.

  • Farsæld Grindvíkinga í forgrunni. Tryggja stöðugleika, styrkja félagsleg tengsl og samstöðu samfélagsins.

  • Farsæld barna lögð til grundvallar. Áhrif hamfara á börn og ungmenni geta verið djúpstæð og langvarandi.

  • Seigla og samfélagsleg sátt leggi grunn að áfallaþolnu og sjálfbæru samfélagi.

  • Sterkt sveitarfélag er forsenda árangurs. Ný sveitarstjórn og stjórnvöld marki stefnu um aðkomu ríkisins og samstarf.

  • Öflugt atvinnulíf styður við efnahagslegan stöðugleika og félagslega velferð.

Öryggi og áhættumat í forgangi

Öryggi er lykilforsenda allra ákvarðana. Áhersla er lögð á að skilgreina ásættanlega áhættu, byggja á faglegu áhættumati í samræmi við alþjóðlega staðla og þróa skýrt fyrirkomulag fyrir eldgos og jarðhræringar, sambærilegt því sem gildir um ofanflóð. Á sama tíma er áfram unnið markvisst að því að endurreisa samfélagið með hagsmuni íbúa að leiðarljósi.

Farsæld og félagslegur stuðningur

Skipulögð eftirfylgni með félagslegum áhrifum hamfaranna er nauðsynleg. Áfram þarf að styðja þá sem rýmdu Grindavík og efla tengsl þeirra, óháð búsetu. Félagsstarf, menning og íþróttir gegna mikilvægu hlutverki í endurreisnarferlinu.

Börn og skólamál

Sérstök áhersla er lögð á farsæld barna. Rannsóknir sýna að líðan barna eftir rýmingu kallar á samræmd og markviss úrræði. Tryggja þarf öryggi og vellíðan barna og ekki hefja skólastarf fyrr en áhættumat gefur tilefni til. Svæðisbundin farsældarráð gegna mikilvægu hlutverki í samhæfingu málefna barna.

Innviðir og húsnæðismál

Tryggja þarf öruggan rekstur grunninnviða, þar á meðal rafveitu, vatnsveitu, fráveitu og fjarskipta. Skýra þarf lagagrundvöll endurreisnar og eyða óvissu um tryggingar og fjármögnun fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði. Heimila á sölu og leigu húsnæðis, en ekki er lagt til að barnafjölskyldur setjist að í Grindavík að svo stöddu.

Atvinnulíf og fjárhagur sveitarfélagsins

Viðhalda þarf öflugu atvinnulífi og bæta aðgengi að fjármögnun og tryggingum. Tækifæri felast meðal annars í ferðaþjónustu og fiskeldi. Ljóst er að Grindavíkurbær getur ekki staðið einn undir endurreisninni og því þarf að koma til markviss stuðningur ríkisins og endurskoðun tekjustofna sveitarfélagsins.

Stjórnsýsla og samstarf

Efla þarf stjórnsýslu bæjarfélagsins til að takast á við endurreisn til viðbótar við hefðbundin verkefni sveitarfélags, bæta upplýsingamiðlun og styrkja samstarf við önnur sveitarfélög. Mikilvægt er að samvinna ríkis og sveitarfélags sé markviss og formfest, auk þess sem skoða þarf framtíðarskipan sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Niðurstaða

Rammaáætlunin dregur upp skýra mynd af því hvernig endurreisn Grindavíkur getur farið fram með öryggi, velferð og sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Endurreisn Grindavíkur er langtímaverkefni sem byggir á því að takast á við óvissu með skýrum hætti, tryggja öryggi og setja farsæld íbúa – ekki síst barna – í forgang. Verkefnið er umfangsmikið og krefst samstillts átaks, en felur jafnframt í sér tækifæri til að byggja upp sterkara og betur undirbúið samfélag til framtíðar.

Rammaáætlun um endurreisn