Feb 11, 2026

Niðurstöður könnunar um viðhorf Grindvíkinga

Grindavíkurnefnd hefur birt niðurstöður könnunar sem Maskína framkvæmdi meðal Grindvíkinga á tímabilinu 4. desember 2025 til 25. janúar 2026. Alls tóku 1.470 einstaklingar þátt, eða um 54% bæjarbúa 18 ára og eldri. Auk þess veittu foreldrar upplýsingar um 1.171 barn. Könnunin varpar ljósi á hagi, líðan og framtíðaráform Grindvíkinga rúmum tveimur árum eftir rýmingu bæjarins í nóvember 2023. 

Rúm 10% svarenda búa nú aftur í Grindavík, en meirihlutinn hefur sest að annars staðar, einkum í Reykjanesbæ og á höfuðborgarsvæðinu. Um 65% svarenda búa í eigin húsnæði og tæplega þrír af hverjum fjórum eru í launuðu starfi. Þó hafa 41% þeirra sem eru á vinnumarkaði skipt um starf frá rýmingu. 

Félagsleg tengsl og heilsa 

Rúm 80% aðspurðra lýstu sterku tengslaneti í Grindavík, en einungis 37% segja að tengslanet þeirra sé sterkt í dag. Þátttaka í félagsstarfi hefur einnig dregist saman. Um 59% segja andlega heilsu sína verri en fyrir rýmingu og 51% líkamlega heilsu verri. Um helmingur hefur nýtt sér sálrænan stuðning og meirihluti þeirra telur hann hafa gagnast vel. 

Gögnin sýna jafnframt að eldri borgarar meta andlega heilsu sína betri en yngri aldurshópar, en hópurinn 50–59 ára upplifir mest álag á andlega líðan. 

Börn og ungmenni 

Foreldrar veittu upplýsingar um börn sín á aldrinum 0–17 ára. Samkvæmt svörum foreldra hafa 87% barna eignast nýja vini, 78% aðlagast vel í skóla og um 70% stunda íþróttir eða tómstundastarf, eða svipað hlutfall og fyrir rýmingu. 

Þó telur rúmur þriðjungur foreldra andlega heilsu barna sinna verri en áður. Um 60% foreldra telja að börn þeirra hafi þurft sálrænan stuðning í kjölfar rýmingar. Af þeim sem nýttu sér sálrænan stuðning sem var í boði í kjölfar rýmingar segir meirihluti foreldra hann hafa gagnast vel. 

Foreldrar sem meta eigin líðan verri eru líklegri til að meta líðan barna sinna á sama hátt. Þær niðurstöður samræmast alþjóðlegum rannsóknum og undirstrika mikilvægi þess að styðja markvisst við foreldra sem burðarás í bataferli barna. 

Framtíðarsýn og búsetuáform 

Meðal þeirra sem búa utan Grindavíkur telja 15% líklegt að þeir flytji aftur til Grindavíkur á árinu 2026. Helstu ástæður eru sterk tenging við bæinn og vilji til að snúa aftur á fyrra heimili. 

Þeir sem ekki hyggjast flytja á næstunni nefna óvissu um framvindu náttúruhamfaranna og að börn séu farin að festa rætur á nýjum stað. Á sama tíma segjast 73% geta hugsað sér að búa áfram þar sem þau eru næstu árin. 

Næstu skref 

Áhrifa rýmingarinnar gætir enn, sérstaklega þegar kemur að félagslegum tengslum og andlegri líðan, en á sama tíma sýna gögnin merki um seiglu og virka atvinnuþátttöku meðal þátttakenda. 

Niðurstöður könnunarinnar munu nýtast Grindavíkurnefnd og stjórnvöldum við áframhaldandi stefnumótun. Vinna er hafin við rýnihópakönnun, en með þeirri nálgun getur fólk tjáð sig frekar um áðurnefnda þætti og þannig veitt dýpri innsýn í stöðu og líðan Grindvíkinga. 


Heildarniðurstöður könnunarinnar má sjá hér


 

Niðurstöður könnunar