Mar 6, 2026
Minnisblöð um innviðamál Grindavíkurbæjar

Um þessar mundir vinnur Grindavíkurnefnd að gerð rammaáætlunar, en þar er fjallað um ýmsa þætti endurreisnarferlis bæjarins. Í tengslum við þessa vinnu hafa verið unnin minnisblöð er varða afmörkuð viðfangsefni tiltekinna sviða. Hér má lesa og kynna sér innihald þessara minnisblaða og þannig geta Grindvíkingar og aðrir áhugasamir fylgst með gangi mála m.a. þegar kemur að fráveitu-og hafnarmálum bæjarins.