Mótvægisaðgerðir vegna áhrifa hamfara á börn í Grindavík - Minnisblað

Börn eru almennt talin sérstaklega viðkvæm fyrir hamförum og afleiðingum þeirra. Áföll í barnæsku geta haft áhrif fyrir lífstíð og mikilvægt er að sérstök áhersla sé lögð á að draga úr líkum á að sá hópur sem varð fyrir áfallinu við rýmingu Grindavíkur upplifi sambærileg áföll aftur.
Í ljósi þessa fór Grindavíkurnefnd þess á leit við verkfræðistofuna Örugg að útbúa minnisblað sem fjallar um þá áhættu sem börn í Grindavík búa eða munu búa við og langtímaáhrif, bæði líkamleg og sálræn, sem börn verða fyrir í kjölfar áfalla.
Markmiðið er að varpa ljósi á hvaða áhættu þarf að huga að og hvaða áhættuminnkandi aðgerðir hægt sé að innleiða þegar kemur að andlegri og líkamlegri heilsu grindvískra barna.