Leiðrétt áhættumat
Gera þurfti smávægilegar lagfæringar á áhættumatinu sem gefið var út 9.mars síðastliðinn.
Lagfæringin snýr að uppfærðum upplýsingum, en matið inniheldur nú nýjustu gögn um líkanareikning á rúmmáli kviku. Gögnin eru frá 3.mars en ekki 17. febrúar eins og í áhættumatinu sem áður var birt.
Eins var bætt við orði sem hafði gleymst í setningu sem segir: „Breyting hefur ekki orðið á áhættustigum í Grindavík frá síðasta útgefna hættumati“, en orðið "ekki" hafði vantað í eldri útgáfu.