Jan 8, 2026
Rammaáætlun um endurreisn í kjölfar jarðhræringa í Grindavíkurbæ
Forsætisráðherra hefur falið Grindavíkurnefnd að vinna að gerð rammaáætlunar um endurreisn Grindavíkurbæjar. Erindisbréf vegna þessa verkefnis má sjá hér að neðan.
Mikilvægt er að nefndin kynni sér sem flest sjónarmið og eigi samráð við Grindvíkinga og aðra hagaðila. Nefndin hyggst nú í janúar eiga fundi til að kynna sér sjónarmið og viða að sér upplýsingum sem varða gerð áætlunar um endurreisn í Grindavík. Bæði mun nefndin eiga frumkvæði að slíkum fundum, en jafnframt bjóða upp á að eiga fundi með félagasamtökum, stofnunum, fyrirtækjum eða öðrum sem áhuga hafa. Einnig er mögulegt að senda inn skrifleg erindi.
Beiðnir um fundi eða innsend erindi til nefndarinnar sendist á netfangið grindavikurnefnd@grn.is